Um KrakkApp
Hugmyndin að KrakkApp kviknaði þegar ég stóð frammi fyrir því að leita leiða til að láta barið mitt sinna heimanámi. Sjálfur átti ég erfitt með nám og gekk illa í skóla. Í dag eru aðrar áskoranir en áður – skjánotkun og skjátími hafa orðið stór hluti af daglegu lífi barna.
KrakkApp varð til þegar barnið mitt vildi horfa á skjá en var ekki búið að ljúka námi. Þá vaknaði spurningin: Hvernig geta foreldrar betur fylgst með og hvatt börnin sín til að læra áður en þau fá skjátíma? Með KrakkApp geta foreldrar sett skýrar reglur – börnin ljúka ákveðnum verkefnum í lestri, stærðfræði eða landafræði og fá svo skjátíma í verðlaun.
Þar sem mér sjálfum gekk illa í grunnskóla langar mig að hjálpa börnunum mínum og öðrum til að eiga betri námsupplifun. Ég vil leggja mitt af mörkum til að fyrirbyggja námsörðugleika og gera nám að jákvæðari upplifun fyrir börnin.